Sviss hafði betur gegn Georgíu, 2:0, er liðin mættust á Boris Paichadze Dinamo Arena í Tíblisi í undankeppni EM karla í fótbolta sem fer fram á næsta ári.
Eftir markalausan fyrri hálfleik skoraði Steven Zuber á 56. mínútu og Denis Zakaria gulltryggði svissneskan sigur á 80. mínútu.
Gíbraltar og Írland mætast í sama riðli kl. 17. Auk þeirra eru Danir svo í riðlinum. Danir hefja leik á útivelli gegn Sviss á þriðjudaginn kemur.