Englendingar héldu sína aðra markaveislu á fjórum dögum í undankeppni Evrópumóts karla í knattspyrnu í kvöld en þeir heimsóttu Svartfellinga til Podgorica og unnu þar stórsigur í A-riðlinum, 5:1.
Á föstudag burstuðu Englendingar Tékka 5:0 á Wembley og eru því með markatöluna 10:1 eftir tvo fyrstu leikina.
Marko Vesovic kom þó Svartfellingum yfir eftir 17 mínútur en Michael Keane og Ross Barkley svöruðu fyrir England fyrir hlé. Barkley bætti við þriðja markinu á 69. mínútu, Harry Kane skoraði það fjórða á 71. mínútu og Raheem Sterling innsiglaði sigurinn með fimmta markinu á 81. mínútu.
Kósóvó og Búlgaría skildu jöfn, 1:1, í sama riðli. England er með 6 stig, Búlgaría 2, Kósóvó 1, Svartfjallaland 1 og Tékkland ekkert.