Roma búið að finna nýjan þjálfara

Paulo Fonseca.
Paulo Fonseca. AFP

Portúgalinn Paulo Fonseca hefur verið ráðinn þjálfari ítalska knattspyrnuliðsins Roma til næstu tveggja ára.

Fonseca hefur stýrt liði Shakhtar Donetsk undanfarin þrjú ár þar sem liðið hefur hampað meistaratitlinum öll þrjú árin sem og bikarmeistaratitlinum.

Fonseca tekur við þjálfun Roma af Claudio Ranieri sem hætti eftir tímabilið eftir að hafa tekið við liðinu í mars.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert