Ten Hag framlengir við Ajax

Erik ten Hag náði mögnuðum árangri með Ajax á nýafstöðnu …
Erik ten Hag náði mögnuðum árangri með Ajax á nýafstöðnu tímabili. AFP

Knattspyrnustjórinn Erik ten Hag hefur framlengt samning sinn við hollensku meistarana í Ajax en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins. Ten Hag skrifar undir nýjan þriggja ára samning við félagið sem rennur út árið 2022.

Ajax vann bæði hollensku úrvalsdeildina og hollensku bikarkeppnina undir stjórn ten Hag á nýliðnu tímabili og þá fór liðið alla leið í undanúrslit Meistaradeildarinnar þar sem Ajax féll úr leik gegn Tottenham.

Ten Hag tók við Ajax í desember 2017 og hann var því að stýra liðinu á sínu fyrsta heila tímabili í vetur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert