Viðar settur beint í byrjunarliðið

Viðar Örn Kjartansson.
Viðar Örn Kjartansson. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Viðar Örn Kjartansson var settur beint í byrjunarlið Rubin Kazan þegar liðið heimsótti Dinamo Moskvu í rússnesku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.  Viðar Örn gekk í raðir félagsins í gær á láni frá Rostov.

Ekki blés byrlega fyrir Rubin í leiknum því miðjumaður liðsins fékk rautt spjald á 36. mínútu og spiluðu Viðar og félagar því manni færri það sem eftir lifði leiks. Viðar Örn fór af velli í hálfleik, en allt stefndi í markalaust jafntefli. Á þriðju mínútu uppbótartíma skoraði Rubin hins vegar sigurmarkið og vann magnaðan 1:0 sigur.

Þetta var fyrsti sigur Rubin í fyrstu tveimur umferðunum og er liðið nú með fjögur stig eins og Rostov.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert