Ronaldo ekki ákærður fyrir nauðgun

Cristiano Ronaldo er ekki á leiðinni í dómsal.
Cristiano Ronaldo er ekki á leiðinni í dómsal. AFP

Knattspyrnumaðurinn Cristiano Ronaldo verður ekki ákærður fyrir nauðgun, þrátt fyrir að Kathryn Mayorga frá Bandaríkjunum hafi sakað hann um glæpinn á hótelherbergi í Las Vegas í júní árið 2009.

Ronaldo hefur ávallt neitað sök og var málinu lokað eftir stutta rannsókn árið 2009. Rannsóknin fór hins vegar aftur af stað þegar Mayorga höfðaði einkamál gegn Ronaldo í september á síðasta ári. 

Umdæmissaksóknari Clark County í Nevada-ríki í Bandaríkjunum kom með tilkynningu í dag þess efnis að rannsókn málsins væri lokið. Ekki væru til nægar sannanir gegn Ronaldo til að fara með málið í dómsal. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert