Öskraði og æpti á blaðamannafundi (myndskeið)

Bernard Challandes
Bernard Challandes AFP

Bernard Challandes, landsliðsþjálfari Kósóvó í fótbolta, var með læti á blaðamannafundi liðsins í dag. Kósóvó mætir Englandi á St Mary's-vellinum á morgun í undankeppni EM 2020 og fór Challandes yfir leikaðferð sína með athyglisverðum hætti. 

Að sögn Challandes mun Kósóvó mæta með klikkaða pressu í leikinn og eiga ensku leikmennirnir ekki að fá mikinn frið á boltanum. Til að leggja áherslu á orð sín öskraði hann og æpti, eins og sjá má á meðfygljandi myndskeiði.

Kósóvó er í öðru sæti A-riðils með átta stig eftir fjóra leiki, einu stigi á eftir Englandi sem er í toppsætinu. Liðið hefur ekki tapað síðan Challandes tók við í febrúar á síðasta ári. Lætin í þjálfaranum má sjá hér fyrir neðan. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert