Kjartan kom af bekknum og skoraði tvö

Kjartan Henry Finnbogason fagnar marki með Vejle.
Kjartan Henry Finnbogason fagnar marki með Vejle. Ljósmynd/Vejle

Kjartan Henry Finnbogason átti heldur betur öfluga innkomu í leik Vejle og Hvidovre í dönsku B-deildinni í knattspyrnu í dag en hann skoraði tvívegis í 3:0-heimasigri Vejle.

Kjartan kom inn á í hálfleik er staðan var markalaus og hann var ekki lengi að setja knöttinn í netið. Hann skoraði fyrra markið á 58. mínútu og innsiglaði svo sigurinn með þriðja marki liðsins á 84. mínútu.

Vejle er í þriðja sæti með 14 stig eftir átta leiki en liðið hefur unnið fjóra. Kjartan er kominn með 6 mörk í deildinni í fyrstu átta leikjunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert