Messi í leikmannahópi Börsunga gegn Dortmund

Lionel Messi á æfingasvæði Barcelona í morgun.
Lionel Messi á æfingasvæði Barcelona í morgun. AFP

Lionel Messi hefur verið fjarri góðu gamni í liði Barcelona í fyrstu fimm umferðunum í spænsku 1. deildinni í fótbolta vegna meiðsla í kálfa.

En nú er argentínski snillingurinn klár í slaginn á nýjan leik og hann verður í leikmannahópi Börsunga þegar þeir mæta Borussia Dortmund í 1. umferð riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í Þýskalandi annað kvöld.

Messi lék síðast með Barcelona 25. maí þegar liðið tapaði í bikarúrslitaleik á móti Valencia.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert