Tekst Suárez að höggva á hnútinn?

Luis Suárez og Antoine Griezmann fagna marki með Barcelona.
Luis Suárez og Antoine Griezmann fagna marki með Barcelona. AFP

Spánarmeistarar Barcelona mæta þýska liðinu Borussia Dortmund á útivelli í 1. umferð Meistaradeildar Evrópu í fótbolta í kvöld.

Luis Suárez, framherji Börsunga, vonast til geta höggvið á hnútinn í Dortmund í kvöld en Úrúgvæinn hefur ekki skorað mark á útivelli í Meistaradeildinni í fjögur ár.

Hann skoraði síðast á útivelli gegn Roma í september 2015 en hefur síðan þá spilað 18 leiki með Barcelona í Meistaradeildinni á útivelli án þess að skora.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert