Roberto Mancini landsliðsþjálfari Ítala í knattspyrnu er búinn að framlengja samning sinn við ítalska knattspyrnusambandið.
Mancini er nú samningsbundinn ítalska knattspyrnusambandinu fram yfir heimsmeistaramótið sem haldið verður í Katar árið 2022. Hann tók við þjálfun landsliðsins í maí á síðasta ári.
Ítalir, undir stjórn Mancini, tryggðu sér um helgina farseðilinn í úrslitakeppni EM en þeir hafa unnið alla sjö leiki sína í riðlinum.