Morgan setur stefnuna á Ólympíuleikana

Alex Morgan.
Alex Morgan. AFP

Bandaríski heimsmeistarinn Alex Morgan segist stefna að því að komast í landslið Bandaríkjanna sem keppir á Ólympíuleikunum í Tókíó í júlí og ágúst á næsta ári. 

Morgan er barnshafandi og á von sér um þremur mánuðum áður en Ólympíuleikarnir hefjast .

„Ef allt gengur að óskum (varðandi meðgöngu og fæðingu) þá mun ég gefa kost á mér í landsliðið og hlakka til að spila í Tókíó,“ er haft eftir Morgan hjá USA Today. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert