Messi skoraði gegn Brasilíu

Lionel Messi tekur víti í leiknum í kvöld.
Lionel Messi tekur víti í leiknum í kvöld. AFP

Lionel Messi skoraði eina markið þegar Argentína vann Brasilíu í vináttulandsleik í Saudi Arabíu í kvöld. 

Messi skoraði eina mark leiksins strax á 14. mínútu leiksins. Argentína fékk vítaspyrnu sem Messi náði ekki að skora úr en náði að fylgja á eftir og skora. 

Fjórum mínútum áður hafði Gabriel Jesus brennt af vítaspyrnu fyrir Brasilíu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert