Sandra María skaut Leverkusen áfram

Sandra María Jessen
Sandra María Jessen

Sandra María Jessen reyndist hetja Leverkusen í þýsku bikarkeppninni í dag er hún skoraði sigurmarkið gegn Frankfurt, 1:0, á útivelli í 16-liða úrslitunum.

Sandra var í byrjunarliði Leverkusen og skoraði markið á 29. mínútu. Liðið er því komið í pottinn fyrir 8-liða úrslitin en síðar í dag fer fram viðureign Bayern München og Wolfsburg þar sem Sara Björk Gunnarsdóttir kemur líklega við sögu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert