Unnu ekki fimm leiki í röð

Philippe Coutinho fagnar marki sínu gegn S-Kóreu ásamt samherjum sínum.
Philippe Coutinho fagnar marki sínu gegn S-Kóreu ásamt samherjum sínum. AFP

Þegar Brasilíumenn unnu Suður-Kóreu í vináttulandsleik í knattspyrnu þá höfðu Brasilíumennirnir ekki unnið í síðustu fimm leikjum sínum. 

Brasilía sigraði 3:0 og bundu því endi á slæma leikjahrinu en Brasilíumenn eiga ekki slíku að venjast á knattspyrnuvellinum. 

Brasilía er sigursælasta lið í sögu HM í knattspyrnu sé horft til þess að Brasilía hefur oftast orðið heimsmeistari eða fimm sinnum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert