Samúel Kári Friðjónsson varð í dag norskur bikarmeistari í knattspyrnu þegar Viking vann 1:0-sigur gegn Haugesund í úrslitaleik á Ullevål, þjóðarleikvangi Norðmanna í Ósló.
Það var Zlatko Tripic sem skoraði sigurmark leiksins á 51. mínútu úr vítaspyrnu en það reyndist eina mark leiksins. Samúel hóf leikinn á varamannabekknum en kom inn á á 76. mínútu. Axel Óskar Andrésson lék ekki með Viking vegna meiðsla en hann hefur verið frá keppni síðan í fyrstu umferð deildarinnar í mars. Viking endaði í fimmta sæti úrvalsdeildarinnar á nýafstaðinni leiktíð en Haugesund í því sjöunda.
Þetta er í sjötta sinn sem Viking hampar norska bikarmeistaratitlinum en liðið vann síðast bikarkeppnina fyrir átján árum árið 2001. Odd og Rosenborg hafa unnið keppnina oftast allra eða tólf sinnum hvort.