Atlético Madríd fer með naumt 1:0-forskot í seinni leikinn sinn gegn Liverpool í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta eftir fyrri leikinn í kvöld. Saúl Niguez skoraði sigurmark Atlético strax á fjórðu mínútu.
Eftir markið var Liverpool sterkari aðilinn, en illa gekk að skapa færi gegn gríðarlega sterkri vörn Atlético og Jan Oblak hafði lítið að gera í markinu. Hinum megin tók Atlético nokkrum sinnum að skapa usla í hættulegum skyndisóknum.
Mo Salah fékk besta færi Liverpool en hann skaut í varnarmann er hann fékk frítt skot í teignum. Atlético fékk fín færi til að skora annað markið sitt. Álvaro Morata fékk það besta en Alisson gerði vel í að verja frá honum einn gegn einum.
Í þýskalandi fagnaði Borussia Dortmund 2:1-sigri á PSG. Erling Braut Håland kom Dortmund yfir á 69. mínútu en Neymar jafnaði á 75. mínútu. Håland var hins vegar hetja Dortmund, því hann skoraði sigurmarkið á 77. mínútu.
Síðari leikir liðanna fara fram 11. mars.