Ronaldo jafnaði eigið met í þúsundasta leiknum

Cristiano Ronaldo var enn og aftur á skotskónum í dag.
Cristiano Ronaldo var enn og aftur á skotskónum í dag. AFP

Cristiano Ronaldo jafnaði persónulegt met þegar hann skoraði fyrra mark Juventus í 2:1-útisigri á SPAL í ítölsku A-deildinni í fótbolta í kvöld.

Portúgalinn hefur nú skorað í ellefu leikjum í röð, líkt og hann gerði með Real Madríd árið 2014. 

Ronaldo, sem var að leika sinn 1000. leik á ferlinum, kom Juventus yfir á 39. mínútu með sínu 725. marki á ferlinum og var staðan í leikhléi 1:0. 

Walesverjinn Aaron Ramsey bætti við öðru marki Juventus á 60. mínútu, en Andrea Petagna minnkaði muninn úr víti á 70. mínútu og þar við sat. 

Juventus er á toppi deildarinnar með 60 stig, fjórum stigum meira en Lazio, sem á leik til góða gegn Genoa á útivelli á morgun. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert