Öllum leikjum sem fram áttu að fara í tveimur efstu deildum svissnesku knattspyrnunnar um komandi helgi hefur verið frestað af öryggisástæðum vegna kórónuveirunnar.
Yfirvöld í Sviss gáfu út tilskipun um að allir íþróttaviðburðir í landinu þar sem von væri á fleiri en eitt þúsund áhorfendum eða þátttakendum yrðu felldir niður til 15. mars og knattspyrnusamband landsins brást við því á þennan hátt.