Heimsótti soninn og var sektaður

Jerome Boateng.
Jerome Boateng. AFP

Jermone Boateng var sektaður af liði sínu Bayern München fyrir að brjóta reglur um útgöngubann en hann fór og heimsótti veikan son sinn. 

Í yfirlýsingu frá Bayern segir að leikmaðurinn hafi farið lengra frá heimili sínu en viðmiðunarreglur félagsins segja til um á tímum kórónuveirunnar. 

Boateng tjáir sig um málið við þýska blaðið Bild og segist hafa farið að heimsækja son sinn sem sé 4 ára og ekki við góða heilsu. Hann hafi gert mistök með því að greina ekki félaginu frá heimsókninni. Honum þyki viðbrögð félagsins sorgleg en virði ákvörðunina. 

Ekki er gefið upp hversu há upphæðin er en fram kemur að Bayern ætli að láta hana renna til sjúkrahúsa í München. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert