Brasilíska knattspyrnustjarnan Neymar hefur gefið sem samsvarar tæplega 137 milljónum króna í baráttunni við kórónuveiruna.
Helmingurinn fór til UNICEF og hinn helmingurinn í sjóð sem hann stofnaði í heimalandinu. Áður höfðu Lionel Messi og Cristiano Ronaldo gefið háar fjárhæðir í baráttunni við faraldurinn.
Neymar hefur ekki greint frá gjöfinni sjálfur, heldur staðfesti brasilíski sjónvarpsmaðurinn Chris Flores það í samtali við Fofocalizando í Brasilíu.
„Hann vildi ekki greina frá gjöfinni sjálfur. Við vildum hins vegar segja fólki frá því. Það er mikilvægt að breiða út jákvæðni og góðan boðskap,“ sagði Flores.