Knattspyrnumaðurinn Mauro Icardi er að ganga til liðs við Frakklandsmeistara PSG fyrir 57 milljónir evra frá Inter Mílanó en félögin hafa komist að samkomulagi um kaupverðið samkvæmt Sky Sports.
Icardi var á láni hjá PSG á nýafstaðinni leiktíð en hann er 27 ára gamall framherji frá Argentínu. Hann hóf atvinnumannaferil sinn með Sampdoria þar sem hann sló í gegn í ítölsku A-deildinni. Eftir frábæra frammistöðu þar var hann keyptur til Inter Mílanó árið 2013. Icardi skoraði tólf mörk í fjórtán byrjunarliðsleikjum í frönsku 1. deildinni á tímabilinu.