Spænski knattspyrnumaðurinn Saúl Niguez greindi frá því á Twitter í dag að hann ætli að tilkynna nýtt félag eftir þrjá daga. Hefur hann lengi verið orðaður við Manchester United.
Siguez, sem er 25 ára og hefur skorað fjögur mörk í 37 leikjum með Atlético Madríd á leiktíðinni, skildi eftir einföld skilaboð á samfélagsmiðlinum: „Nýtt félag, ég tilkynni það eftir 3 daga.“
Talið er að United sé reiðubúið að borga Atlético 135 milljónir punda fyrir leikmanninn og greiða honum 200.000 pund í vikulaun. Óvíst er með framtíð Paul Pogba hjá félaginu og gæti Niguez átt að fylla í hans skarð.
🔴 COMUNICADO 🔴
— Saúl Ñiguez (@saulniguez) May 31, 2020
Os quería comunicar algo importante para mí. pic.twitter.com/ptEAD8falU