Höfðu betur gegn tíu mönnum Gladbach

Nils Petersen (t.h.) fagnar með liðsfélögum sínum í kvöld.
Nils Petersen (t.h.) fagnar með liðsfélögum sínum í kvöld. AFP

Freiburg vann 1:0-heimasigur á Borussia Mönchengla­dbach í eina leik kvöldsins í þýsku efstu deildinni í knattspyrnu. Gestunum mistókst þar með að hirða þriðja sætið af RB Leipzig sem spilar um helgina.

Nils Petersen skoraði sigurmark leiksins á 58. mínútu, mínútu eftir að hann kom sjálfur inná, og tíu mínútum síðar fengu gestirnir rautt spjald þegar markaskorarinn Alassane Pléa fékk sitt annað gula.

Fleiri urðu mörkin ekki og tókst Freiburb að vinna sigur en liðið er í 8. sæti deildarinnar með 41 stig þegar 30 umferðir eru búnar. Gladbach er áfram í 4. sætinu með 56 stig, tveimur stigum á eftir Leipzig og fjórum stigum á eftir Dortmund en bæði lið eiga leik til góða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert