Messi er í kapphlaupi við tímann

Lionel Messi á æfingu hjá Barcelona.
Lionel Messi á æfingu hjá Barcelona. AFP

Lionel Messi fyrirliði spænska knattspyrnuliðsins Barcelona er nú í kapphlaupi við tímann um að vera tilbúinn í slaginn þegar keppni hefst á nýjan leik í spænsku 1. deildinni.

Messi glímir við smávægilega tognun og æfir einn og sér þessa dagana, samkvæmt félagi hans, til að taka enga áhættu.

Barcelona heldur titilvörninni áfram laugardaginn 13. júní þegar liðið mætir Mallorca. Ellefu umferðum er ólokið í 1. deildinni spænsku en Barcelona er með 58 stig gegn 56 stigum Real Madrid í einvígi liðanna um meistaratitilinn.

Fyrsti leikur deildarinnar eftir hléið er nágrannaslagur Sevilla og Real Betis fimmtudagskvöldið næsta, 11. júní.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert