Sara nálgast enn einn meistaratitilinn

Sara Björk Gunnarsdóttir.
Sara Björk Gunnarsdóttir. mbl.is/Hari

Landsliðsfyrirliðinn Sara Björk Gunnarsdóttir lék allan leikinn í 5:1 sigri Wolfsburg á Frankfurt í efstu deild þýsku knattspyrnunnar í dag og lið hennar nálgast enn þýska meistaratitilinn. 

Alexandra Popp, Fridolina Rolfö og Svenja Huth komu Wolfsburg í 3:0 og þannig var staðan í hálfleik. Ewa Pajor bætti við fjórða markinu á 51. mínútu en fimm mínútum síðar minnkaði Laura Freigang muninn fyrir Frankfurt áður en Huth skoraði sitt síðara mark.

Wolfsburg hefur 52 stig í toppsæti deildarinnar og ellefu stiga forskot á Bayern München sem er í 2. sæti og á leik til góða. Frankfurt hefur 30 stig í 4. sæti. Wolfsburg hefur spilað 18 leiki af 22 í deildinni og vantar aðeins fimm stig í síðustu fjórum leikjunum til að tryggja sér titilinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert