Havnar Bóltfélag, HB, hafði betur gegn Tvøroyrar Bóltfélagi, 1:0, á útivelli í færeysku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Heimir Guðjónsson þjálfaði HB frá 2017 til 2019.
Dan í Soylu skoraði sigurmarkið á tólftu mínútu og sá til þess að HB næði sex stiga forskoti á toppi deildarinnar.
HB er með fullt hús stiga eftir sex leiki, en NSÍ Runavík, B36 og ríkjandi meistarar KÍ Klaksvík koma þar á eftir með tólf stig og eiga þau öll leik til góða.