Hólmbert Aron Friðjónsson, framherji norska knattspyrnufélagsins Aalesund, átti frábæran leik fyrir liðið þegar Aalesund heimsótti Vålerenga í sjöttu umferð norsku úrvalsdeildinni á laugardaginn síðasta.
Hólmbert skoraði tvívegis í leiknum en fyrsta mark leiksins kom eftir stoðsendingu frá íslenska vinstri bakverðinum Davíð Kristjáni Ólafssyni. Aalesund, sem er nýliði í deildinni, er með 3 stig eftir fyrstu sex leiki tímabilsins.
Frammistaða Hólmberts skilaði honum sæti í liði vikunnar, ásamt miðjumanninum Parfait Bizoza en Hólmbert er fjórði markahæsti leikmaður deildarinnar með 3 mörk eftir fyrstu sex leiki tímabilsins.