Króatinn rifti samningnum

Mario Mandzukic skoraði ekki í Katar.
Mario Mandzukic skoraði ekki í Katar. AFP

Króatíski knattspyrnumaðurinn Mario Mandzukic hefur rift samningi sínum við Al-Duhail í Katar eftir aðeins sex mánuði hjá félaginu. Mandzukic kom til Al-Duhail frá Juventus, þar sem hann fékk lítið að spila eftir að Maurizio Sarri tók við. 

Mandzukic spilaði aðeins fimm leiki í Katar, einn þeirra gegn Heimi Hallgrímssyni og Aroni Einari Gunnarssyni í Al-Arabi, og tókst ekki að skora. 

Var Mandzukic orðaður við Manchester United áður en hann hélt til Katar en Sky Sports greinir frá því að enska félagið hafi ekki áhuga á framherjanum.

Greinir miðilinn frá því að AC Mílan, Galatasaray og Fenerbahce komi til greina sem næsti áfangastaður sóknarmannsins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert