Fyrsti leikur Andra í byrjunarliði

Andri Fannar Baldursson
Andri Fannar Baldursson Ljósmynd/Bologna

Knattspyrnumaðurinn ungi Andri Fannar Baldursson var í fyrsta skipti í byrjunarliði ítalska liðsins Bologna er það fékk Reggina í heimsókn í ítalska bikarnum í dag. 

Andri lék fyrri hálfleikinn í 2:0-sigri, en hann fór af velli í hálfleik í stöðunni 0:0. Sigurinn var kærkominn fyrir Bologna sem hefur farið illa af stað í A-deildinni og er liðið aðeins með þrjú stig eftir fimm leiki. 

Reggina er í sjöunda sæti með sjö stig í B-deildinni, en Emil Hallfreðsson lék með Reggina frá 2007 til 2011. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert