Liverpool komið áfram

Curtis Jones fagnar marki sínu fyrir Liverpool í kvöld.
Curtis Jones fagnar marki sínu fyrir Liverpool í kvöld. AFP

Liverpool er komið áfram í 16 liða úrslit Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu karla eftir 1:0 sigur gegn Ajax á Anfield í kvöld.

Sigurmark leiksins skoraði hinn 19 ára gamli Curtis Jones á 58. mínútu leiksins, eftir undirbúning jafnaldra síns, Neco Williams. Báðir eru þeir uppaldir hjá Liverpool.

Sigurinn þýðir að Liverpool er búið að vinna D-riðil Meistaradeildarinnar þegar einni umferð er ólokið.

Markalaust í Portúgal

Manchester City gerði markalaust jafntefli gegn Porto á Dragao vellinum í kvöld. Bæði lið eru komin áfram í 16 liða úrslit en sigurvegari riðilsins verður ekki endanlega ljós fyrr en í lokaumferðinni.

City er í efsta sæti með 13 stig og Porto í öðru með 10 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert