Franski framherjinn Karim Benzema sem leikur með Real Madrid verður leiddur fyrir rétt í tengslum við fjárkúgunartilraun gagnvart fyrrverandi félaga hans í franska landsliðinu, Mathieu Valbuena, að sögn saksóknara í Frakklandi.
Benzema, sem er 33 ára gamall, hefur ekki verið valinn í landsliðið frá því málið kom upp árið 2015. Reynt var að kúga fé út úr Valbuena með því að hóta dreifingu á kynlífsmyndbandi þar sem leikmaðurinn kom fyrir. Benzema lét Valbuena vita um tilvist myndbandsins símleiðis og þá var talið er hann væri viðriðinn málið.
Benzema hefur haldið því fram að lögreglumaður hafi beitt óheiðarlegum vinnubrögðum til að tengja hann við málið.
Valbuena spilar með gríska liðinu Olympiacos í dag. Þeir Benzema voru félagar á þeim tíma sem málið kom upp og léku báðir í landsliðinu á HM í Brasilíu 2014. Hvorugur þeirra var valinn í liðið fyrir EM 2016 er Frakkar töpuðu úrslitaleiknum á móti Portúgal.