Búin að skrifa undir í Þýskalandi

Karólína Lea Vilhjálmsdóttir hefur skrifað undir samning við stórlið Bayern …
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir hefur skrifað undir samning við stórlið Bayern München. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Karólína Lea Vilhjálmsdóttir er gengin til liðs við þýska knattspyrnufélagið Bayern München.

Miðjukonan hefur fengið félagaskipti sín frá Breiðabliki til Þýskalands staðfest en félagskiptin hafa legið lengi í loftinu.

Bayern hefur byrjað tímabilið í þýsku 1. deildinni af miklum krafti en liðið er í efsta sæti deildarinnar með 36 stig eða fullt hús stiga eftir fyrstu tólf leiki sína.

Þýskalandsmeistarar Wolfsburg eru í öðru sæti deildarinnar með 31 stig en Wolfsburg hefur unnið þýsku deildarkeppnina síðustu fjögur árin.

Bayern München hefur þrívegis orðið Þýskalandsmeistari, síðar árið 2016 en Dagný Brynjarsdóttir lék með liðinu þegar það varð meistari árið 2015.

Karólína gekk til liðs við Breiðablik frá upp­eld­is­fé­lagi sínu FH árið 2017 en hún á að baki 78 leiki í efstu deild með Breiðabliki og FH þar sem hún hef­ur skorað ell­efu mörk.

Sókn­ar­kon­an lék sína fyrstu A-lands­leiki á síðasta ári í undan­keppni EM og byrjaði báða leiki ís­lenska landsliðsins gegn Svíþjóð, á Laug­ar­dals­velli og í Gauta­borg.

Hún hef­ur tví­veg­is orðið Íslands­meist­ari með Breiðabliki og einu sinni bikar­meist­ari á tíma sín­um í Kópa­vog­in­um og þá var hún lyk­ilmaður í liði Blika sem fór alla leið í sex­tán liða úr­slit Meist­ara­deild­ar­inn­ar tíma­bilið 2019.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert