Juventus missti af stigum í toppbaráttunni

Cristiano Ronaldo skoraði en það dugði ekki til.
Cristiano Ronaldo skoraði en það dugði ekki til. AFP

Ítalíumeistarar Juventus þurftu að sætta sig við 1:1-jafntefli gegn Hellas Verona á útivelli í ítölsku A-deildinni í fótbolta í kvöld.

Cristiano Ronaldo kom Juventus yfir á 49. mínútu en Antonín Barák jafnaði fyrir Verona á 77. mínútu og þar við sat.

Juventus er í þriðja sæti deildarinnar með 46 stig, sjö stigum á eftir toppliði Inter Mílanó og þremur stigum á eftir AC Milan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert