Bilbao missir gestgjafahlutverk EM til Sevilla

San Mames leikvangurinn í Bilbao átti að hýsa þrjá leiki …
San Mames leikvangurinn í Bilbao átti að hýsa þrjá leiki á EM. AFP

Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, ákvað í dag að Bilbao kæmi ekki lengur til greina  sem leikstaður í lokakeppni Evrópumóts karla í sumar þar sem ekki liggur fyrir að tryggt sé að áhorfendur geti verið á leikjunum í Baskaborginni. 

Leikirnir verða færðir til innan Spánar og leikið verður í Sevilla í Andalúsíuhéraði á Suður-Spáni í staðinn. Þar eru reglur heilbrigðisyfirvalda vegna útbreiðslu kórónuveirunnar ekki jafn strangar og á norðurströndinni. 

Spánverjar áttu að leika alla sína heimaleiki í G-riðlinum í Bilbao en þeir fara nú fram í Sevilla og spænska liðið leikur þar við Svíþjóð 14. júní, Pólland 19. júní og Slóvakíu 23. júní.

Borgaryfirvöld í Bilbao eru afar óhress með þessa ákvörðun UEFA og benda á að sjö ár séu síðan samið var um að leikið yrði í borginni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert