Í leikmannahópnum í fyrsta sinn

Jóhannes Kristinn Bjarnason gæti spilað sinn fyrsta leik fyrir Norrköping …
Jóhannes Kristinn Bjarnason gæti spilað sinn fyrsta leik fyrir Norrköping síðar í dag. Ljósmynd/@ifknorrkping

Jóhannes Kristinn Bjarnason er í leikmannahóp sænska knattspyrnufélagsins Norrköping sem mætir Varberg í sænsku úrvalsdeildinni í dag.

Þetta er í fyrsta sinn sem Jóhannes er í leikmannahóp sænska liðsins en hann gekk til liðs við félagið frá KR í febrúar á þessu ári. Hann er aðeins sextán ára gamall og lék einn úrvalsdeildarleik með KR síðasta haust, þá fimmtán ára.

„Jóhannes hefur verið valinn í nítján manna leikmannahóp liðsins í fyrsta sinn,“ segir meðal annars á heimasíðu Norrköping.

Ísak Bergmann Jóhannesson er einnig í hópnum en Ari Freyr Skúlason er að glíma við meiðsli og er ekki í hópnum að þessu sinni.

Norrköping hefur farið vel af stað á tímabilinu og er með 11 stig í öðru sæti deildarinnar eftir fyrstu sex leiki sína.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert