Ramos og Messi saman í liði

Sergio Ramos og Lionel Messi.
Sergio Ramos og Lionel Messi. AFP

Eftir félagaskipti Sergios Ramos og Lionels Messis til París Saint Germain er ljóst að þeir verða samherjar í vetur en eru vanari því að vera keppinautar hjá Real Madríd og Barcelona. 

Sergio Ramos er sautjándi knattspyrnumaðurinn sem spilar með bæði Lionel Messi og Cristiano Ronaldo. 

Enginn Íslendingur hefur spilað með Ronaldo en Eiður Smári Guðjohnsen lék með Messi hjá Barcelona. 

Eftirtaldir leikmenn hafa einnig spilað með Messi og Ronaldo: 

Angel Di Maria
Paulo Dybala
Gerard Pique
Carlos Tevez
Ezequiel Garay
Fernando Gago
Andre Gomes
Deco
Gonzalo Higuain
Nelson Semedo
Arthur
Miralem Pjanic
Trincao
Martin Caceres
Henrik Larsson
Gabriel Heinze

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert