Þórdís áfram í Meistaradeildinni

Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir og samherjar hennar eru komnar áfram í …
Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir og samherjar hennar eru komnar áfram í 2. umferð. mbl.is/Árni Sæberg

Apollon Limassol frá Kýpur tryggði sér í kvöld sæti í 2. umferð Meistaradeildar Evrópu í fótbolta með 2:1-sigri á CSKA Moskvu frá Rússlandi.

Yuliya Mysanikova kom CSKA Moskvu yfir á 32. mínútu en Kystyna Freda jafnaði fyrir Apollon á 39. mínútu og var staðan í hálfleik 1:1.

Þannig var staðan fram að 66. mínútu þegar Katie Lockwood skoraði sigurmark Apollon.

Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir lék fyrstu 85 mínúturnar með Apollon en hún kom til félagsins frá Breiðabliki á dögunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert