Veira í veldisvexti hjá þýsku meisturunum

Manuel Neuer og Dayot Upamecano (til vinstri) eru báðir með …
Manuel Neuer og Dayot Upamecano (til vinstri) eru báðir með kórónuveiruna. AFP

Meistaralið Bayern München í karlaflokki í fótbolta glímir við hópsmit í sínum röðum þessa dagana en nú eru átta leikmenn í einangrun eftir að hafa greinst með kórónuveiruna í gær og dag.

Í gær voru það Manuel Neuer, markvörður, Kingsley Coman, Corentin Tolisso og Omar Richards sem greindust með veiruna.

Í dag bættust Leroy Sané, Dayot Upamecano, Lucas Hernandez og Tanguy Nianzou í hópinn. Aðeins þrír dagar eru í næsta leik liðsins í þýsku 1. deildinni en Bayern mætir Borussia Mönchengladbach á föstudagskvöldið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert