Á förum frá Juventus

Aaron Ramsey hefur spilað meira með velska landsliðinu en Juventus …
Aaron Ramsey hefur spilað meira með velska landsliðinu en Juventus undanfarna mánuði og skorar hér í undankeppni HM. AFP

Velski knattspyrnumaðurinn Aaron Ramsey er á förum frá Juventus á Ítalíu en Massimilio Allegri, knattspyrnustjóri Juventus, staðfesti það í dag.

Ramsey hefur átt erfitt uppdráttar frá því hann kom til Juventus frá Arsenal árið 2019 og aldrei náð að festa sig í sessi. Hann hefur aðeins spilað þrjá leiki í A-deildinni á þessu tímabili og samtals 49 leiki á hálfu þriðja tímabili.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert