Suárez gerði tveggja ára samning

Luis Suárez er kominn til Brasilíu.
Luis Suárez er kominn til Brasilíu. Ljósmynd/Gremio

Úrúgvæski knattspyrnumaðurinn Luis Suárez hefur skrifað undir tveggja ára samning við brasilíska félagið Gremio.

Su­árez, sem er 35 ára, lék síðast með Nacional í heima­land­inu og varð úr­úg­væsk­ur meist­ari, áður en hann yf­ir­gaf fé­lagið. Grem­io verður nýliði í efstu deild á næstu leiktíð, eft­ir eitt ár í B-deild­inni.  

Su­árez varð að stjörnu hjá Li­verpool á sín­um tíma og átti einnig góðu gengi að fagna hjá Barcelona og Atlético Madrid á Spáni. Þá hef­ur hann um langt skeið verið lyk­ilmaður hjá landsliði þjóðar sinn­ar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert