Mbappé staðfestir brottför

Kylian Mbappé fer frá PSG í sumar.
Kylian Mbappé fer frá PSG í sumar. AFP/Franck Fife

Franski knattspyrnumaðurinn Kylian Mbappé hefur staðfest það endanlega að hann hyggist ekki skrifa undir nýjan samning hjá París SG og rói því á önnur mið í sumar.

The Athletic greinir frá því að Mbappé hafi tilkynnt PSG formlega um fyrirætlanir sínar.

Síðasta sumar tilkynnti sóknarmaðurinn félaginu að hann hygðist ekki virkja ákvæði um að framlengja samning sinn um eitt ár til viðbótar svo hann rynni út sumarið 2025 og hefur hann ekki skipt um skoðun.

Með því að missa Mbappé af launaskrá sparar PSG 200 milljónir evra, tæplega 30 milljarða íslenskra króna.

Franska félagið hefur áhuga á því að festa kaup á Victor Osimhen, nígerískum framherja Napoli, í sumar til þess að fylla skarð Mbappés, sem er sterklega orðaður við Real Madríd.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert