Alfreð með skilaboð til Sociedad um Orra

Alfreð Finnbogason, Guðlaugur Victor Pálsson og Orri Steinn Óskarsson eftir …
Alfreð Finnbogason, Guðlaugur Victor Pálsson og Orri Steinn Óskarsson eftir að Alfreð Finnbogason skoraði sigurmarkið gegn Bosníu fyrir ári. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Alfreð Finnbogason, fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu, sendi skilaboð til stuðningsmanna Real Sociedad á X-síðu sinni, áður Twitter, um Orra Steinn Óskarsson í kvöld. 

Real Sociedad er búið að tilkynna komu Orra Steins til félagsins en spænska félagið greiðir FC Köbenhavn 20 milljónir evra fyrir Íslendinginn. 

Alfreð, sem var fyrsti Íslendingurinn til að spila með Real Sociedad, sagði við stuðningsmenn liðsins að ef þeir gefi Orra ást þá muni hann skora mikið af mörkum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert