Orri á leið til Spánar til að skrifa undir

Orri Steinn Óskarsson ásamt umboðsmanni sínum Magnúsi Agnari Magnússyni.
Orri Steinn Óskarsson ásamt umboðsmanni sínum Magnúsi Agnari Magnússyni. Ljósmynd/@FabrizioRomano

Orri Steinn Óskarsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, er á leiðinni til Spánar til að skrifa undir hjá Real Sociedad. 

Félagaskiptasérfræðingurinn Fabrizio Romano birti mynd af Orra ásamt Magnúsi Agnari Magnússyni umboðsmanni landsliðsmannsins. 

Fyrr í dag var greint frá þvi að Sociedad hafi náð samkomulagi við FC Köbenhavn um kaup á framherjanum fyrir 20 milljónir evra, eða um þrjá milljarða íslenskra króna. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert