Byrjar vel með ítalska stórliðinu

Cecilía Rán Rúnarsdóttir byrjar vel hjá Inter.
Cecilía Rán Rúnarsdóttir byrjar vel hjá Inter. Ljósmynd/Inter

Cecilía Rán Rúnarsdóttir og samherjar hennar hjá Inter Mílanó unnu stórsigur á Sampdoria, 5:0, á heimavelli í fyrstu umferð ítölsku A-deildarinnar í fótbolta í kvöld.

Cecilía lék sinn fyrsta deildarleik með Inter í leiknum, en hún er að láni hjá félaginu frá Bayern München í Þýskalandi. Hún hefur mikið glímt við meiðsli undanfarin ár, en er komin á fullt á ný.

Íslenska landsliðskonan horfði á fimm mismundandi liðsfélaga skora í dag því þær Beatrice Merlo, Annamaria Serturini, Michela Cambiaghi, Lina Magull og Elisa Polli gerðu mörk liðsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert