Íslenska landsliðskonan Guðný Árnadóttir lagði upp sigurmark Kristianstad í 1:0-sigri liðsins gegn Vittsjö í sænsku úrvalsdeildinni í dag.
Sigurmarkið kom á annarri mínútu uppbótartíma en Guðný lagði upp á hina áströlsku Clare Elizabeth Polkinghorne sem skoraði.
Bæði Guðný og Hlín Eiríksdóttir spiluðu allan leikinn fyrir Kristianstad en Katla Tryggvadóttir var ekki með liðinu í dag.
Sigurinn þýðir að Kristianstad situr áfram í fjórða sæti deildarinnar með 39 stig eftir 20 umferðir.