Glæsileg stoðsending Willlums (myndskeið)

Willum Þór í leiknum í gær.
Willum Þór í leiknum í gær. Ljósmynd/Birmingham

Willum Þór Willumsson lagði upp glæsilegt mark í 2:0-sigri Birmingham City gegn  Rot­her­ham í ensku C-deild­inni í gær.

Willum lagði upp seinna mark liðsins sem Jay Stansfield skoraði á 22. mínútu leiksins og skotið var jafn glæsilegt og stoðsendingin.

Willum hefur farið vel af stað með Birmingham en hann hefur lagt upp tvö mörk og skorað eitt í sex leikjum í deildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert