Kristall Máni Ingason lagði upp fyrsta mark Sønderjyske í 2:1-sigri liðsins gegn Vejle í dag.
Sønderjyske komst yfir á 27. mínútu en Kristall átti góða hornspyrnu sem fann pönnuna á Lirim Qamili sem stangaði boltann í netið.
Á 74. mínútu jafnaði Yeni N’Gbakoto metin fyrir Vejle. Sigurmark Sønderjyske kom á sjöundu mínútu uppbótartíma en Marc Dal Hende skoraði það.
Daníel Leó Grétarsson spilaði allan leikinn fyrir Sønderjyske og Kristall spilaði fyrstu 81 mínúturnar.
Sønderjyske situr í 10. sæti deildarinnar með átta stig.