Sjáðu mörk Alberts í fyrsta leiknum

Albert Guðmundsson byrjar vel hjá Fiorentina.
Albert Guðmundsson byrjar vel hjá Fiorentina. Ljósmynd/Fiorentina

Albert Guðmundsson skoraði bæði mörk Fiorentina í fyrsta leik sínum með félaginu. Fiorentina hafði betur gegn Lazio, 2:1, í ítölsku A-deildinni í knattspyrnu í dag. 

Bæði mörk Alberts komu úr vítaspyrnu en hann fiskaði fyrra vítið sjálfur.  

Sigurinn í dag var fyrsti sigur Fiorentina á tímabilinu en félagið situr í 10. sæti með sex stig eftir fimm umferðir. 

Hér fyrir neðan má sjá mörk Alberts.   

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert