Fær lögregluvernd vegna hótana

Stuðningsmenn Roma með borða þar sem stendur: „Daniele De Rossi …
Stuðningsmenn Roma með borða þar sem stendur: „Daniele De Rossi ávallt með okkur!“ AFP/Filippo Montefort

Lina Souloukou, framkvæmdastjóri ítalska knattspyrnufélagsins Roma, hefur verið sett undir lögregluvernd vegna hótana stuðningsmanna karlaliðsins.

Stuðningsmenn Roma eru margir hverjir ósáttir við að Daniele De Rossi hafi verið látinn taka pokann sinn fyrr í mánuðinum stuttu eftir að hafa skrifað undir nýjan samning.

Samkvæmt ítalska blaðinu La Repubblica beinist reiði stuðningsmanna að Souloukou vegna brottvikningar De Rossi. Vegna hótana hafi því verið ákveðið að setja hana og fjölskyldu hennar undir lögregluvernd.

Er um varúðarráðstöfun að ræða þar sem Souloukou og fjölskylda fá ekki fulla lögreglufylgd en öryggi þeirra verður aukið. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert